Magnaður andskoti
Morning bagle! Það sem af er af vikunni!!...hhmmm ... Við erum að komast inní reglurnar í skvassinu og erum að sjáfsögðu þá farnar að keppa! Ég tapa alltaf en spiritin er hár. Karlhormónarnir eru amk að brjótast fram í okkur í leiknum, höfum að vísu ekki grítt spaðanum í hvor aðra né í veggi en við finnum báðar fyrir aukningu á heimskulegum óviðráðanlegaum reiðis köstum þegar illa gengur!
Mikið er myndin Starsky and Hutch mögnuð. Á þriðjudaginn var annar í horfun á henni. Hreynlega andaðist úr hlátri. Einstaklega hrifin af þessari gerð af húmor! Ekki margar myndir sem ég nenni að eiga annan í horfun á ... en þessi .. verð eiginlega að eiga hana. Dyrið skellti sér á bingó í gær og kom heim með svona mest ljómandi expresso vel með öllum græjum, eg er reglulega hrifin af svona tækjum :) .... og jú.. svo eitt.. svona í tilefni jólanna og hátíðarinnar framundan þá lét ég klippa lubbann, fékk mér hanakamb og rokka bara fínt eftir það. Dýrið fór ekki að gráta eins og þegar ég gerði þetta síðast. Sennilega farin að venjast svona uppátækjum hjá mömmu gömlu! Síðast var hún sem sagt eyðilögð þvi hún vildi meina að mömmur væru ekki pönkarar... mikil grátur! Það eina sem skelfir mig eftir þetta er að núna þegar hárið er orðið svona stutt þá er eg alveg eins og mamma. Ekki það sé leiðum að líkjast en þetta er bara móttó hjá öllum beyglum !!!! Magnaður andskoti!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home